
InHarmony
Live the life you love, love the life you live




Rev-Sport
Verð: 550.000 m.vsk.
Þessi hnakkur er virkilega spennandi og útfærslan allt öðruvísi en á öðrum hnökkum
fyrirtækisins. Þetta er eini hnakkur Stübben sem ekki er með hið hefðbundna Stübben
fjaðurvirki, heldur með byltingarkennda og tæknilega framúrstefnulega nýja hönnun virkis, sem
er mjög létt úr heilsteyptu, fiberglas efni, tvöfalt og opið að aftan (sjá skýringarmyndir). Neðri
helmingur þess fylgir hreyfingum hestsins og efri helmingurinn fær knapann til að fjaðra einkar
vel með hreyfingunni á öllum gangtegundum. Hnakkurinn án ístaðsóla og gjarðar er ca.6,2 kg.
Sjá nánar ásamt videoi um virkið, virkni þess og hnakkinn sjálfan á vefslóðinni:
https://www.revsaddle.com/
Aðeins ein virkisgleidd þar sem virkið lagar sig að mismunandi breiðum herðum
Sætisstærð 17,5 (sama sætisstærð fyrir alla)
Litur: Einlitur að eigin vali eða tvílitur (30.000 kr. aukalega) að eigin vali
Einnig er hægt að velja mismunandi lit á saumum (7000 kr. aukalega)
Á alla hnakka er hægt að fá áritaða plötu með nafni festa á hnakkinn (5.000 kr. aukalega).