
InHarmony
Live the life you love, love the life you live
ÞÆGINDI - ÖRYGGI - GÆÐI - FAGMENNSKA






Portos
Alhliða hnakkur sem hittir beint í mark.
Fallegur,léttur og nettur hnakkur til alhliða notkunar á einstaklega góðu verði.
Mjúkar, hestvænar undirdýnur úr svampi. Meðalstórir hnépúðar og extra mjúk aðkoma fyrir innra hnéð.
Orginal Stübben virki, sem fjaðrar bæði á ská og þversum. Auka svampur í sæti sem gerir það enn mýkra.
Fæst með meðaldjúpu (Portos 2) og djúpu sæti (Portos 1).
Virkisgleidd: 32 cm
Sætis stærðir: M (17,5”) og S (17”)
Verð: 395.000 – m.vsk.
Litir: Einlitur svartur eða tvílitur að eigin vali.
Einnig er hægt að velja mismunandi lit á saumum og fá Biomex í sæti (sjá nánar
að neðan um Focus Biomex).
Á öllum hnökkum er hægt að fá áritaða plötu með nafni festa á hnakkinn.
Biomex í sæti veitir minna áreiti á rófubein og knapinn þreytist síður í baki.
Biomex-tíglarnir í sætinu lyfta knapanum aðseins upp í sætinu og þarmeð situr
hann minna gleiður. Gott fyrir stirðar mjaðmir og sumir fíla þessa útfærslu
einfaldlega betur.
Biomex í sæti er hægt að fá í allar gerðir Benni´s Harmony hnakka nema Comfort.